Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands afréð í morgun að hækka vexti bankans um 0,5%. Meginvextir bankans verða því 5%, en það eru vextir á sjö daga bundnum innlánum.
Ákvörðun peningastefnunefndar er í takt við spár greiningaraðila hjá Arion banka og Íslandsbanka sem báðir spáðu 50 punkta hækkun vaxta.
Í tilkynningu nefndarinnar segir að þótt verðbólga sé enn lítil hafi verðbólguhorfur versnað verulega og horfur á að verðbólga verði meiri en bankinn spáði í maí. Það megi rekja til umsamdra launahækkana. Þá feli aðgerðir stjórnvalda sem eiga að liðka fyrir kjarasamningum aukin ríkisútgjöld í sér og slökun í aðhaldi í ríkisfjármálum.
Í niðurlagi tilkynningarinnar segir nefndin það virðast einsýnt að hækka þurfi vexti umtalsvert í ágúst og frekar á komandi misserum, eigi að tryggja stöðugt verðlag til lengri tíma litið.