Hækka í launum um tugi prósenta

Ákvörðun kjararáðs um að hækka laun nokkurra forstöðumanna ríkisstofnanna og nefndarformanna um tugi prósenta vekur hörð viðbrögð og furðu innan launþegahreyfingarinnar. .BSRB skrifar harðorð mótmæli á vefsíðu sína og segir þar m.a. að hækkanirnar séu umfram hækkanir annars launafólks. Í Fréttablaðinu í dag er greint frá launahækkun ríkislögreglustjóra, landlæknis, formanns kærunefndar útlendingamála, skólastjóra Lögregluskóla ríkisins, forstjóra Útlendingastofnunar, forstjóra Fangelsismálastofnunar og forstjóra Barnaverndarstofu.

 Launin hækka um tugi prósenta umfram þær hækkanir sem kjararáð hafði þegar ákveðið með almennri ákvörðun um áramót.

Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfgreinasambandsins mætir á Hringbraut í kvöld og fer yfir úrskurðina. Fréttablaðið segir einnig frá því að sumir stjórnendanna hafi óskað sérstaklega eftir launahækkunum og fengið.

Mest hækka laun formanns kærunefndar útlendingamála, Hjartar Braga Sverrissonar, um tæplega 50 prósent frá og með 1. desember 2014, rúmlega eitt og hálft ár aftur í tímann. Hækkanirnar eru afturvirkar hjá sumum allt til ársins 2014 en aðrar afturvirkar til 2015 eða ársbyrjun 2016.

Ekki næst samband við Kjararáð til að fá rökstuðning fyrir hækkununum. Formaður þess er Jónas Þór Guðmundsson, kosinn af Alþingi. Aðrir í ráðinu eru: Óskar Bergsson, varaformaður, kosinn af Alþingi, Svanhildur Kaaber, kosin af Alþingi, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, skipaður af Hæstarétti og Hulda Árnadóttir, skipuð af fjármála- og efnahagsráðherra.