Hægur vindur og mengunar­ský í kortunum á nýársnótt

Flest bendir til þess að mengunar­­ský verði yfir borginni á ný­árs­nótt. Svif­ryk og önnur loft­mengun settu svip sinn á síðustu ára­mót, þegar stafa­logn var yfir borginni. Fyrir vikið myndaðist þykkur mengunar­mökkur yfir höfuð­borginni eftir skot­gleði ný­árs­næturinnar. Á­líka mengun gæti verið í vændum, ef marka má veður­spá í borginni annað kvöld. 

Þor­­steinn V. Jóns­­son veður­­fræðingur segir í sam­tali við Frétta­blaðið að flest bendi til þess að leiðinda mistur verði yfir borginni fram á nótt annað kvöld. „Það verður hægur vindur annað kvöld en ekki alveg logn. Það gæti dottið niður um nóttina og þá gæti komið þessi leiðinda­­stybba,“ segir Þor­­steinn sem segir að spár benda til þess að meiri vindur verði í Vestur­bæ Reykja­víkur, en minni til að mynda í Austur­bænum og fleiri hverfum þar sem mengun gæti verið meiri.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/logn-og-mengun-i-borginni-anna-kvoeld