Það er hægt að spara allt að átta þúsund krónur með því að kanna bestu kjörin í umfelgun og dekkjaskiptingum. Nú fer hver að verða síðastur því ólöglegt er að keyra um á nagladekkjum eftir 15. apríl. ASÍ birti árlega verðkönnun sína að því tilefni.
Samkvæmt verðkönnun Alþyðusambands Íslands er allt að 7.697 kr. verðmunur er á þjónustu við dekkjaskipti fyrir jeppa af stærri gerðinni með álfelgu. Titancar var alltaf með lægsta verðið í nýrri könnun á dekkjaskiptum. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðskrá hjá 21 hjólbarðaverkstæði víðsvegar um landið þann 8. apríl síðastliðinn. Titancar var alltaf með lægsta verðið á þjónustunni en Gúmmívinnustofa SP dekk var oftast með það hæsta.
Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa með 17´´ álfelgu sem var ódýrust á 5.500 kr. hjá Titancar en dýrust á 13.197 kr. hjá Gúmmívinnustofunni SP dekk, verðmunurinn var 7.697 kr. eða 140%. Fyrir stálfelgu af sömu stærð var ódýrast að umfelga á 5.500 kr. hjá Titancar en dýrast á 12.384 kr. hjá. Gúmmívinnustofunni SP dekk verðmunurinn var 6.884 kr. eða 125%.
Minnstur verðmunur í könnuninni var á dekkjaskiptum fyrir meðalbíl á 16´´ stálfelgum sem var ódýrust á 4.500 kr. hjá Titancar en dýrust á 7.195 kr. hjá Gúmmívinnustofunni SP dekk, verðmunurinn var 2.695 kr. eða 60%. Fyrir bíl á álfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 4.500 kr. hjá Titancar en dýrust á 8.120 kr. hjá Gúmmívinnustofunni SP dekk. Verðmunurinn var 3.620 kr. eða 80%.
Fyrir smábíl með 14´´ dekk á álfelgu var þjónustan ódýrust á 4.000 kr. hjá Titancar en dýrust á 8.120 kr. hjá Gúmmívinnustofunni SP dekk sem var 4.120 kr. verðmunur eða 103%. Fyrir stálfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 4.000 kr. hjá Titancar en dýrust á 7.195 kr. hjá Gúmmívinnustofunni SP dekk sem var 3.195 kr. verðmunur eða 80%. Það kostar það sama fyrir 15´´ sem er dekk fyrir minni meðalbíl.