Það þarf ekki stóran matjurtargarð til að geta ræktað kartöflur og gómsætt grænmeti. Steinunn Reynisdóttir deildarstjóri Garðyrkjudeildar Garðheima gefur góð ráð um ræktun matjurta í ,,Fólki með Sirrý” á Hringbraut kl. 20:30 á miðvikudag. Steinunn er alvön að leiðbeina viðskiptavinum sem eru að stíga sín fyrstu skref í ræktun. Og hún sýnir hvernig ein plastfata, mold og útsæði er nóg til að hefja kartöfluræktun á svölum eða pallinum. Hægt er að fá sérhannaðar plastfötur sem auðvelda fólki slíka ræktun. Og möguleikarnir eru endalausir ef fólk vill sjálft rækta grænmeti í heilsudrykkinn og salatið. Mikilvægt er að hafa vikur neðst í pottinum til að grænmetið drukkni ekki. Og grænu blöðin eru týnd utan af jafnóðum, beint í ,,boostið.”
Hér er sýnishorn úr þættinum….