Hægt að fyrirbyggja ristilkrabbamein með skimun

Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag fer Ásgeir Theodórs meltingarlæknir yfir hversu mikilvægt það er að hefja markvissa og skipulagða skimun fyrir ristilkrabbameini hér á landi. Þar sem krabbamein í ristli og endaþarmi hefur góðkynja forstig er hægt að finna það og fjarlægja, og þar með fyrirbyggja það.

Hann segir slíka tegund krabbameins vera dauðans alvöru. „Annars vegar er það „dauðans alvara“ að ristilkrabbamein er lengi að búa um sig og lítil sem engin einkenni koma fram fyrr en sjúkdómurinn er langt genginn. Nú falla 67 Íslendingar fyrir þessum sjúkdómi á hverju ári. Hann hefur góðkynja forstig sem má finna, fjarlægja og þannig forða myndun krabbameinsins. Af þessari ástæðu er skimun hjá einkennalausu fólki svo mikilvæg.“

„Hins vegar er það líka „dauðans alvara“, að þrátt fyrir markvissa baráttu, greinaskrif og ráðstefnur svo og fjölda kynninga og viðtala við stjórnmálamenn, landlækna og heilbrigðisráðherra þessa lands síðustu áratugina, hefur ekki tekist að hefja markvissa og skipulagða skimun. Krabbamein í ristli og endaþarmi er þriðja algengasta krabbameinið hjá íslenskum konum og körlum, en önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameina hér á landi,“ skrifar Ásgeir.

Hann bendir á að flestar þjóðir hafi nú hafið skimun og beiti forvarnaraðgerðum með ýmsum aðferðum. Ísland sitji þó eftir. „Þetta aðgerðaleysi er nefnilega „dauðans“ alvara og ólíkt blöðruháls- og brjóstakrabbameini, þá hefur krabbamein í ristli og endaþarmi góðkynja forstig sem mögulegt er að finna og fjarlægja. Þannig er hægt að fyrirbyggja þetta krabbamein!“

„Það hefur verið metið (Ristil­skimun 2015), án aðkomu heilbrigðisyfirvalda, hvað ristilkrabbamein kostar íslenskt þjóðfélag og hvað hægt er að spara (nær 50 milljarða króna) með fyrirbyggjandi skimunaraðgerð til ársins 2060. Það virðist hins vegar ekki hreyfa við þessum aðilum, frekar en önnur rök fyrir markvissum forvarnaraðgerðum. Merkilegt, en óskiljanlegt!“ bætir Ásgeir við.

Hann segir að nú sé kominn tími til breytinga, öllum til hagsbóta. „Nú hefur Skimunarráð verið sett á laggirnar með faghópa sér til stuðnings. Hefjum nú „opna“ og faglega umræðu um fyrirkomulag og skynsamlegar leitaraðferðir í baráttunni gegn krabbameini í ristli og endaþarmi á Íslandi. Lærum af reynslu annarra, forðumst flóknar og áhrifalitlar aðferðir og veljum aðferðir og skipulag sem okkur hentar og skilar okkur að settu markmiði. Fyrirbyggjum ristilkrabbamein og spörum íslensku þjóðinni tugi milljarða króna á næstu áratugum.“

Ásgeir var á meðal viðmælenda í þættinum Tímarím á Hringbraut í febrúar síðastliðnum. Allur þátturinn var tileinkaður umræðu um ristilspeglun og hefst viðtalið við Ásgeir á 10:10: