Viðreisn mun ekkert halla sér!

Það var talað af yfirvegun og reynslu um stjórnmálahorfurnar á Hringbraut í gærkvöld, en þá mættu til skrafs og skýringar í sjónvarpsþáttinn Ritstjórana þeir Svavar Gestsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ritstjóri Vísis.

Báðir eru þeir auðvitað þaulreyndir stjórnmálamenn og ráðherrar til fjölmargra ára, en horfa nú á pólitíkina úr hæfilegum fjarska og eiga ef til vill auðveldara fyrir vikið að greina stóru myndina sem nú blasir við; tímann þegar tveggja flokka ríkisstjórnir virðast vera að baki og skeiðið þegar blokkirnar til hægri og vinstri eru að taka við ásamt miðblokkinni sem er, ólíkt því sem áður var, að verða augljósari kostur en löngum hefur þekkst í íslenskum stjórnmálum, eins og Þorsteinn hefur á orði í þættinum - og einmitt aðspurður hvert Viðreisn muni halla sér, hið nýja miðjuafl í íslenskri pólitík, svarar hann því til að Viðreisn muni líklega ekkert halla sér!

Og um hvað verður kosið, hverjir vinna saman og hvaða líkur eru á stjórnarkreppu að afloknum kosningum? Þessum og enn fleiri áhugaverðum og aðkallandi spurningum er svarað af þekkingu í þessum fróðlega Ritstjóraþætti sem nú er hægt að nálgast hér á vef stöðvarinnar.