Hægist á hagvexti á árinu

Útlit er fyrir mun hægari hagvöxt á þessu ári miðað við síðustu ár, eða 1,1 prósent. Árin 2013-2017 var hagvöxtur að jafnaði 4,4 prósent ár hvert og gert er ráð fyrir því að hagvöxtur hafi verið 3,7 prósent árið 2018. Horfur eru þó á að vöxtur glæðist að nýju árið 2020 og verði þá 3,1 prósent. Þetta er meðal þess sem kem­ur fram í upp­færðri þjóðhags­spá greining­ar­deild­ar Íslands­banka.

Þar kemur fram að núverandi hagsveifla hafi reynst lífseigari en margir höfðu talið og að uppgangur ferðaþjónustunnar, ásamt fleiri hagfelldum þáttum sem ýtt hafa undir myndarlega vöxt einkaneyslu og fjárfestingar, eigi þar stóran hlut að máli,

Í spánni kemur fram að á þessu ári munu drifkraftar vaxtar undanfarinna missera allir verða í einhvers konar hvíldarstöðu. Einkaneysluvöxtur muni verða hægur, vöxtur þjónustuútflutnings lítill og samdráttur mun verða í fjárfestingu atvinnuvega frá fyrra ári.

Árið 2020, þegar gert er ráð fyrir að vöxtur glæðist að nýju, mun koma við sögu líflegri vöxtur einkaneyslu, endurkoma vaxtar í atvinnuvegafjárfestingu og áframhaldandi vöxtur annarrar fjárfestingar sem og vöru- og þjónustuútflutnings.

Skýrsluna í heild má nálgast hér.