Útflutt þjónusta vegna ferðalaga jókst um ríflega 9% í íslenskum krónum talið á öðrum fjórðungi sama tíma í fyrra. Það er aðeins þriðjungur af þeim vexti sem mældist á þessum lið á fyrsta fjórðungi þessa árs.
Þetta er til marks um hversu dregið hefur úr árstíðasveiflum í ferðaþjónustu á Íslandi. Vöxtur utan háannatíma hefur verið mun hraðari en vöxtur á sumarmánuðum.