Hægir á sölu lúxusíbúða í borginni

Það sem einkennir fasteignamarkaðinn öðru fremur er að venjulegu fólki ofbýður verðlagningin í dýrustu hverfunum og reynir fremur að finna sér eiginir í úthverfum eða bæjunum í grennd við Reykjavík. Vandinn er þó sá að fasteignaverð hefur rokið upp í nágrannasveitarfélögunum síðustu mánuði.

Þetta sagði Ingólfur Geir Gissurarson, fasteignasali á Valhöll í þættinum Heimilið á Hringbraut í gærkvöld, en hann metur það svo að mjög hafi hægt á sölu svokallaðra lúxusíbúða á þéttingarsvæðinum í og við miðbæ Reykjavíkur, enda fermetraverðið þar með því allra hæsta á höfuðborgarsvæðinu. Verktakar hafi einfaldlega ofmetið markaðinn fyrir eignir af þessu tagi; það séu einfaldlega ekki jafn margir sem ráði við þessi kaup og þeir hafi haldið í upphafi.

Heimilið er frumsýnt öll þriðjudagskvöld en er einnig aðgengilegt á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.