Heldur hefur hægt á fjölgun launþega hér á landi sem gefur vísbendingu um að þenslan í samfélaginu sá að minnka, en það eru nýjar tölur Hagstofunnar í morgun sem vitna um þessar breytingar.
Á 12 mánaða tímabili, frá apríl 2017 til mars 2018, voru að jafnaði 17.804 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 640 (3,7%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 190.400 einstaklingum laun sem er aukning um 8.300 (4,5%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.
Í mars 2018 voru 2.620 launagreiðendur og um 12.800 launþegar í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, og hafði launþegum fjölgað um 1.400 (12%) samanborið við mars 2017. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 5.700 (3%).