Íbúðaverð hefur hækkað um 90% á höfuðborgarsvæðinu á síðustu sjö árum og hefur raunverð íbúða aldrei verið hærra en nú. Auðvelt er að færa rök fyrir því að hægja fari á enda benda ýmsir þættir til þess að íbúðarverðshækkanir hafi náð hámarki á höfuðborgarsvæðinu - allavega í bili.
Ólíklegt er að íbúðaverð muni lækka á næstunni þó að það sé alls ekki útilokað. Sér í lagi að raunverð lækki. Á hinn bóginn eru rök fyrir því að verið sé að vanmeta kraftinn í hækkun íbúðaverðs á næstunni. Einkum þar sem vaxtastig fer lækkandi og kosningar eru á næsta leiti.
Um þetta fjalla Markaðspunktar Greiningardeildar Arion banka í dag.