Brotalöm í eftirliti mast?

Vegna erindis sem Matvælastofnun (MAST) fékk frá Umboðsmanni Alþingis og sökum umræðu um vanhæfi dýralæknis fisksjúkdóma í tengslum við fiskeldi hefur starfsmaður MAST ákveðið að hætta afhendingu á bóluefnum til seiðiseldistöðva.

Þessa ákvörðun tekur dýralæknirinn til þess að tryggja að ekki sé hægt að efast um hæfi og heilindi hans í störfum fyrir MAST. 

Landsamband veiðifélaga kvartaði yfir svari frá ráðherra landbúnaðar- og sjávarútvegsmála við erindi frá félaginu um að lokað yrði fyrir eldi á frjóum norskum eldislaxi í Ísafjarðardjúpi og í Eyjafirði.

Kvörtun sambandsins laut meðal annars að aðkomu dýralæknis fisksjúkdóma hjá MAST en sambandið  taldi dýralækninn vanhæfan.

Fram koma að hann ávísaði og seldi bóluefni til fiskeldifyrirtækja og hann tók þóknun í formi þjónustugjalda og bæri þess að auki fjárhagslega áhættu að þessum viðskiptum.

Hér er einfaldlega um að ræða almennt neikvætt hæfi rikisstarfsmanns til að að gegna umræddum störfum segja heimildarmenn við Hringbraut. Ærið tilefni er til þess að Umboðsmaður Ailþingis taki þetta mál til frekari athugunar að eigin frumkvæði segja sömu heimildarmenn.