Útvarpsmaðurinn knái Jón Axel Ólafsson lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að lamast öðrum megin í andlitinu. Fram kemur á vef K100 að hann hafi þrátt fyrir það mætt í þáttinn Ísland Vaknar í gærmorgun þar sem samstarfsfélagar hans, Kristín Sif Björgvinsdóttir og Ásgeir Páll Ágústsson, hæddust mikið að honum í bland við mikla vorkunn.
„Það var þannig að í gærmorgun allt í einu þá fann ég fyrir því ég er svona dofinn öðrum megin og sem sagt ég gat ekki brosað nema bara út í hitt en ekki annað, svo lít ég út eins og Björgvin Halldórsson öðrum megin. Það svona hangir niður, það er eins og maður sé alltaf hjá tannlækninum,“ sagði Jón Axel. Þarf hann nú að taka 12 pillur á morgnanna. „Þetta er eins og morgunmatur!“
Getur hann nú ekki blikkað með hægra auganu. „En það er gott að þetta er bara öðrum megin annars væri ég eins og Siggi Hall,“ sagði Jón Axel.
Kristín sagði að hún vorkenndi honum en útlitið væri samt mjög fyndið.
„Þú ert aðeins meira skerí svona. Þú þarft ekki að kaupa þér búning fyrir öskudaginn,“ sagði Kristín Sif og uppskar mikinn hlátur hjá Jóni Axel.
Ásgeir Páll sagði þá:
„Ég segi við þig eins og þú sagðir við mig þegar ég lá á hjartadeildinni, „ertu ekki bara svangur?“