Sumarið 2015 verður að líkindum fært í sögubækurnar sem þess kaldasta um margra ára bil, en sérstaða þess er ekki síst fólgin í fáum hlýjum dögum. Nú er t.d. mánuður liðinn frá því hiti fór síðast yfir 20 gráður hér á landi.
Trausti Jónsson veðurfræðingur segir í samtali við Morgunblaðið í dag að svona fáir hlýir dagar teljist til tíðinda. \"Þetta er vissulega óvenjulegt en þó ekki einsdæmi,\" segir hann við blaðið í dag.
Einkum og sér í lagi hefur verið kalt fyriur norðan og austan það sem af er sumri - og segja ferðaþjónustubændur eystra að sumarið hafi í reynd ekki enn komið; allar rekstrartölur staðfesti það, en aðeins tíundi hluti af þeim Íslendingum sem vanalega hefur skilað sér austur í sumarleyfum hefur legt leið sína austur í sumar. Það segir sína sögu í þessum efnum að hitametið í Dalatanga í sumar er 16 gráður.
Trausti kveðst vona að Austfirðingar fái einhverja hlýju á næstu dögum, en fjórðungurinn á oft mikið inni þegar líða tekur á sumarið að hans sögn.
Fyrsta haustlægðin kemur yfir landið á morgun. Veðurstofan varar við stormi á miðhálendinu á morgun og bendir einnig á að búast megi við vindhviðum allt að 35 metrum á sekúndu við suðurströndina. Í dag er spáð vestanátt og síðan suðvestan fimm til tíu metrum á sekúndu og skýjað að mestu, en þrettán til átján metrum á sekúndu og rigningu á annesjum norðaustantil á landinu fram eftir morgni. Léttskýjað verður á Suðausturlandi. Hiti verður á bilinu sjö til sautján stig, hlýjast suðaustantil í dag, en á Norðausturlandi á morgun.
Ómar ragnarsson spyr á bloggi sínu í morgun hvort sumarið sé á enda, en víða um land fannst svolítið haustkul í lofti í gær og í dag. Hann yrkir með sínu nefi:
Hvar mun að lokum lenda
og leggja að
lasburða hlýja og henda
hrolli af stað?
Sumarið er á enda
eða hvað?