Ingólfur Geir Gissurarson, Everestfari heimsótti Búddíska konungsríkið Buthan um liðna páska ásamt konu sinni. Hann segir frá óhemju framandi stað í miðjum Himalajafjöllunum þar sem meðal annars engin dýr eru drepin og innfæddir borða bara grænmeti. Skattur á ferðamenn er hár en hver ferðamaður greiðir vel yfir 20 þúsund krónur á dag fyrir að vera í landinu.
Búddíska Konungsríkið Buthan er ekki beint í alfaraleið. En þangað fer fólk nú samt. Landið er innan Himalayafjalla í Suður Asíu, á milli Kína og Indland annars allt um lykjandi. Það er um 38 þúsund ferkílometrar með um 750 þúsund íbúa.