Ha, djók; á þjóðin að redda stjórninni?

\"Er þetta ekki djók? Nei, sveimér þá, ég held ekki,\" skrifar þáttastjórnandinn Sigurjón M. Egilsson á vef sinn í tilefni þeirra orða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra um að vísað verðtryggingunni í þjóðaratkvæði.

Þau orð hans féllu í umræðuþættinum Eyjunni á Stöð 2 um helgina, en afnám verðtryggingar var sem kunnugt er eitt helsta kosningaloforð Framsóknar vorið 2013. Sigurjón, vanur spyrillinn, furðar sig stórum á því að nú vilji ráðherrann vísa loforðinu til þjóðarinnar, flokkur sem hafi viljað vísað veginn biðji nú þjóðina um að hjálpa sér, en sem kunnugt er hafa sjálfstæðismenn verið hér óþægur ljár í þúfu og fráleitt mjög sannfærðir um ágæti afnáms verðtryggingar: \"Á ekki að lesa úr þessu að Sigmundur Davíð telji sig þurfa að skjóta ágreiningi innan eigin ríkisstjórnar til þjóðarinnar,\" spyr Sigurjón í tilskrifi sínu og bendir á að þau séu nokkur málin innan stjórnarinnar sem ágreiningur er um: \"Eða kannski er réttara að segja sem Sjálfstæðisflokkurinn stöðvar eða tefur. Húsnæðismálin og stjórn fiskveiða eru þar á meðal,\" bendir Sigurjón á og segir Framsókn hefna sín með athugasemdum, svo sem að ekki sé rétt að selja Landsbankann núna og að Bjarni formaður Sjálfstæðisflokksins sé í raun umboðslaus að stofna fjárfestingarbanka í Asíu. Ekki megi gleyma að á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins hafi verið samþykkt að gera Landsbankans að samfélagsbanka, andstætt vilja íhaldsins.

\"Ég veit það ekki, en mér finnst afar sérstakt að forsætisráðherra þjóðar, skuli skjóta ágreiningi innan eigin ríkisstjórnar til þjóðarinnar í von um að hún leysi innanbúðarvandann á stjórnarheimilinu,\" skrifar Sigurjón, margreyndur af samtölum við stjórnarherra og spyr enn: \"Er þá ekki rétt að spyrja að fleiru. Til dæmis um kvótann, húsnæðismál, kjör aldraðra og öryrkja og fleira og fleira. Búa til spurningarvagn um allt það sem deilt er um innan ríkisstjórnarinnar.\"