Gylfi vill ekki sjá 25 ára þak á verðtryggingu

Gylfi Magnússon, fyrrverandi viðskiptaráðherra og formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, segir erfitt að sjá ávinning í því að banna verðtryggð lán til lengri tíma en 25 ára. Gylfi tekur nokkur dæmi máli sínu til stuðnings.

„Eitt af því sem hefur verið hótað undanfarna daga í tengslum við kjarasamninga er að banna verðtryggð lán til lengri tíma en 25 ára. Veit ekki hvort það er rétt en það er erfitt að sjá einhvern ávinning fyrir nokkurn mann af því, sérstaklega ekki ungt fólk sem er að kaupa sitt fyrsta húsnæði,“ segir Gylfi á Facebook.

Hann tekur dæmi af 25 ára gömlu pari sem tekur 30 milljóna króna lán til 40 ára til að kaupa sína fyrstu íbúð.

Nánar á

https://www.dv.is/frettir/2019/04/03/gylfi-vill-ekki-sja-25-ara-thak-verdtryggingu-svona-gaetu-afborganir-ungs-folks-litid-ut/