Gylfi vill 60-65 prósent skatt á ofurlaun

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands segir að breyta verði skattkerfinu hér á landi svo það taki almennilega á þeim ofurlaunum sem séu aftur að verða áberandi í samfélaginu og skekki stöðuna mjög á vinnumarkaði. 

„Ég held að það sé al­veg klárt mál að þetta sé aft­ur og aft­ur að leiða til átaka á meðal þjóðar­inn­ar. Þetta hafði greini­lega mjög mik­il áhrif á af­stöðu ein­stakra aðild­ar­fé­laga minna í gær, frétt­irn­ar af Lands­virkj­un og bönk­un­um,“ segir hann við mbl.is um ofurlaunaþróunina.

Gylfi seg­ir þar að setja ætti háan há­tekju­skátt á „of­ur­laun“ og nefnir að 60-65% væri allt í lagi: \"Það let­ur og það á að letja. Það á að letja fyr­ir­tæki í að gera svona, en það á líka að breyta skatta­lög­um fyr­ir­tækja með þeim hætti að frá­drátt­ar­bærni launa­kostnaðar þegar laun eru kom­in í ein­hverj­ar svona fjár­hæðir eigi bara ein­fald­lega ekki að vera til staðar. Hlut­haf­arn­ir ættu bara sjálf­ir að borga þetta. Það ætti að skatt­leggja þessi laun grimmi­lega.“

Útspil stjórn­valda frá því í gær opnaði á sam­tal ýms­ar skatt­kerf­is­breyt­ing­ar sem kæmu tekju­lægri hóp­um til góða. Meðal ann­ars var þar rætt um mögu­lega hækk­un per­sónu­afslátt­ar, en krafa ASÍ hef­ur verið að per­sónu­afslátt­ur hækki í sam­ræmi við launa­vísi­tölu.