Gylfi þór verður klár fyrir hm

Gylfi Þór Sig­urðsson verður klár í slag­inn með ís­lenska landsliðinu á HM í Rússlandi í sum­ar en hann meidd­ist á hné í viður­eign Evert­on gegn Bright­on í ensku úr­vals­deild­inni í knatt­spyrnu um síðustu helgi og óttuðust menn það versta þegar fyrstu fregn­ir bár­ust að um al­var­leg meiðsli væru að ræða.

Fréttavefurinn mbl.is fékk njósnir af stöðu mála í hádeginu í dag, en fram kem­ur á vef Evert­on að reiknað sé með að Gylfi verði frá keppni í 6-8 vik­ur.

„Við höld­um áfram að meta meiðslin Gylfa frá viku til viku og sjúkraþjálf­arat­eymið mun vinna náið með hon­um, eins og það ger­ir með meidda leik­menn, til að fá hann aft­ur út á völl­inn eins fljótt og hægt er,“ seg­ir Sam All­ar­dyce, knatt­spyrn­u­stjóri Evert­on.

Óvíst er hvort Gylfi nái að spila meira með Evert­on á þessu tíma­bili en loka­leik­ur Evert­on í ensku úr­vals­deild­inni er á móti West Ham þann 13. maí.