Gylfi Þór Sigurðsson landsliðskappi í knattspyrnu og leikmaður efstu deildar liðs Swansea í fótbolta sagðist í viðtali í sjónvarpsþættinum 433 á Hringbraut í gærkvöld aldrei hafa neytt áfengis um sína daga og að væntanlega yrði það svo um aldur og ævi.
Hann gantaðist með það í þættinum að hann hefði hálfpartinn lofað strákunum í landsliðinu að fá sér einn bjór ef þeir hefðu komist á Heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Brasilíu á síðasta sumri - og raunar hafi munað mjög litlu að hann hefði þurft að standa við það loforð, eða sem nam tveimur mörkum og einum leik.
Aðspurður hvort hann ætlaði að taka sömu áskorun í ljósi möguleika íslenska landsliðsins á að komast á Evrópumeistaramótið í knattspyrnu á næsta ári sagðist hann halda að af því gæti vart orðið; líkurnar væru jú meiri!
Hann sagðist vera mjög sáttur við þessa ákvörðun sína að vera laus við áfengi; það gerði ekkert annað en að hjálpa honum til að ná árangri í keppnisgrein sinni sem hann lifði fyrir þessi árin hjá liði sínu Swansea sem er að finna í samnefndri 240 þúsund manna borg í Wales. Þar liði honum vel í fjölskylduvænum bæ sem vissulega væri þó fátæklegri af viðburðum en Lundúnir þar sem hann bjó á meðan hann lék með Tottenham.
Sjá má allan þáttinn undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og klippur úr honum á forsíðu vefjarins.