Gylfi segir þetta vera verstu sviðsmyndina

Gylfi Zoega hagfræðiprófessor var gestur í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun og ræddi þar verðbólguna, b´ði hérlendis sem erlendis.

Hann var spruður sérstaklega út í málið í sambandi við komandi borgar- og sveitastjórnarkosningar. Hann sagði að þar þyrftu sveitafélögin að vera samstíga í sínum aðgerðum næstu mánuði og grínaðist með að íslendingar ættu þó erfitt með að ganga í takt.

Gylfi var spurður út í hvað myndi gerast ef það myndi það ekki ganga eftir og hvað væri versta sviðsmyndin.

„Nú hafa vextir hækkað en raunvextir eru samt bullandi neikvæðir. Versta sviðsmyndin er sú að vaxtahækkanirnar verði hægar svo eftirspurnin haldi áfram að vera mjög mikil og að vinnumarkaðurinn fari í hnút,“ svaraði prófessorinn.