Gylfi hættir sem forseti así

Gylfi Arn­björns­son mun ekki gefa kost á sér til end­ur­kjörs sem for­seti Alþýðusam­bands Íslands á 43. þingi ASÍ sem haldið verður í októ­ber. Þetta til­kynnti hann á miðstjórn­ar­fundi sam­bands­ins í dag.

Gylfi seg­ir ákvörðun­ina ekki hafa verið ein­falda en er sann­færður um að hún sé rétt, að því er seg­ir í frétta­til­kynn­ingu frá ASÍ sem send var út eft­ir fund­inn sem lauk nú síðdeg­is.

„Ég tók við sem for­seti ASÍ þrem­ur vik­um eft­ir hrun og það var gríðarleg áskor­un sem beið okk­ar sem vor­um í for­ystu á vinnu­markaðinum á þeim tíma. Nú 10 árum síðar erum við kom­in fyr­ir vind og vel það,“ sagði Gylfi í yf­ir­lýs­ingu sinni á fund­in­um.

 Nánar hér á vef ASÍ