Gylfi Þór Sigurðsson landsliðsmaður í fótbolta er kominn af hækjunum eftir hnémeiðslin sem hann fékk í leik Everton og Brighton um daginn og er farinn að geta gengið nokkurn veginn eðilega.
Þetta kemur fram í viðtali við Gylfa á heimasíðu Everton. „Meðferðin gengur bara vel,“ segir hann. Gylfi segist stefna á að koma til baka eftir meiðslin í betra formi en nokkru sinni.
„Mér finnst ég finna jákvæðan mun á mér með hverjum degi sem líður,“ segir Gylfi. Hann hittir sérfræðing í London á þriðjudag í næstu viku og þá verður staðan metin.
Hann segist yfirleitt óþolinmóður svo þetta taki á. „Ég veit að þetta getur tekið tíma og ég þarf að vera þolinmóður. Það tekur tíma fyrir líkamann að lagast og ég verð að hlusta á hann,“ segir Gylfi.