Gyðingar vilja stöðva silju dögg

Trú­ar­leiðtog­ar gyðinga í Evr­ópu eru ósátt­ir við laga­frum­varp Silju Dagg­ar og átta annarra þing­manna um að umsk­urður barna al­mennt verði bannaður með lög­um að viðlagðri fang­els­is­refs­ingu í stað þess að slíkt bann nái aðeins til stúlkna eins og nú er raun­in.

\"Ég gerði mér grein fyr­ir því að þetta mál myndi vekja at­hygli hér á Íslandi en ég bjóst ekki við viðbrögðum frá rabbín­um í út­lönd­um,“ seg­ir Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins í samtali við mbl.is sem vakti fyrst miðla athygli á umkvörtunum rabbína vegna þessa.

Hún segist hafa fengið mjög góð viðbrögð hérna heima við frumvarpinu og þetta mál sé ekki bundið við neina póli­tík: \"Ég held að Íslend­ing­ar horfi á þetta sem barna­vernd­ar­mál og það er ástæðan fyr­ir því að ég legg þetta fram.“

Silja Dögg seg­ist alls ekki vilja tengja málið við trú­ar­brögð, það eigi fyrst og fremst að snú­ast um barna­vernd: \"Lög­gjaf­inn á að gæta sér­stak­lega að rétt­ind­um barna vegna þess að þau geta ekki varið sig gegn of­beldi,“ segir hún við vefinn