Forseti evrópska gyðingaþingsins segir á vef sambandsins að gyðingaþingið fordæmi innkaupabann Reykjavíkurborgar á vörum frá Ísrael. Gyðingar séu nú að skoða lögmæti ákvörðunar með liti til alþjóðlegra sáttmála. Þetta kemur fram í frétt Bylgjunnar.
Haft er eftir Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra í Reykjavík, að viðbrögð ísraelsmanna komi ekki á óvart. Bannið sé mikilvægt fyrir alþjóða mannréttindabaráttu í heiminum. Borgarstjórn verði að taka afstöðu með mannréttindum, hverjir sem í hlut eigi. Margir hafa stutt ákvörðun borgarráðs og vísa þar til voðaverka Ísraelsmanna og yfirgangs gagnvart Palestínumönnum en styrkur þessara tveggja hópa er mjög ólíkur, Palestínumönnum í óhag. Aðrir telja óhæfu að borgin blandi sér í alþjóðamál með þessum hætti og ráða flokkslínur viðhorfum að nokkru.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segist í Fréttablaðinu í dag hafa velt fyrir sér hvort ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur standist lög um opinber innkaup. Hann telur að án samstöðu annarra ríkja skili viðskiptabannið eitt og sér ekki árangri.
Borgarstjórn hefur áður blandað sér með beinum hætti í alþjóðapólitík eins og t.d. gagnvart Kínverjum þegar Jón Gnarr var borgarstjóri.