Gústaf Níelsson kemur bróður sínum varnar vegna ummæla hans um Gunnar Smára Egilsson og þær líflátshótanir sem hann hefur orðið fyrir undanfarna daga. Það gerir hann á Faceobok þræði hjá Halldóri Auðari Svanssyni.
Sjá einnig: Þórður Snær gáttaður á Brynjari Níels
Halldór Auðar hrósar þar Degi B. Eggertssyni í hástert fyrir að fordæma ofbeldi og þær hótanir sem Gunnar Smári hefur orðið fyrir undanfarna daga en hjólar um leið í Brynjar Níelsson sem gerði lítið úr hótununum í Facebook þræði í gær.
„Það á ekki að vera flókið að leggja ágreining til hliðar þegar svona kemur upp á og leggja áherslu á að þarna sé fólk komið yfir strikið - en er samt greinilega of flókið fyrir aðstoðarmann innanríkisráðherra,“ skrifar Halldór Auðar.
„Í hans heimi er þetta bara sjálfsagður hlutur sem fylgir bransanum, óþarfi að vera eitthvað að kvarta yfir þessu. Gunnar Smári kallaði þetta víst líka bara yfir sjálfan sig með sinni orðræðu.“
„Þau slá ótt og títt hérahjörtun.“
Þá svarar Gústaf Níelsson Halldóri:
„Þau slá ótt og títt hérahjörtun.“
Halldór Auðar svarar þá:
„Æi slepptu bara þessum aumu ásökunum um hugleysi. Eini tilgangur þeirra er að forðast umræðuefnið, ofbeldishótanir, með því að væna þann sem talar um það sem vandamál um aumingjaskap fyrir að kippa sér upp við það.
Færa sumsé fókusinn á þann sem hefur orð á vandamálinu. Ofbeldi er ekki fordæmt vegna þess að viðkomandi er hræddur við það, það er fordæmt af því það eyðileggur samfélög að ofbeldi fái að þrífast án þess að því sé andmælt.“
Þá svarar Gústaf:
„Þú þarft ekki að vera með þessa tilgerð. Sumt fólk kann því ágætlega að baða sig í ljósi fjölmiðlanna. Gunnar Smári og Dagur eru af þeirri gerðinni. Löggan á að leysa úr svona máli, sé það gerlegt, en ekki fjölmiðlar.“