Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, er gáttaður á viðbrögðum Brynjars Níelssonar, aðstoðarmanns Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, við líflátshótunum sem Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands hefur borist á samfélagsmiðlum.
Eins og fram hefur komið greindi Gunnar Smári frá því um helgina að honum hefðu borist líflátshótanir.
Gunnar Smári segir að hann hafi fengið að venjast hótunum og ofstæki á blaðamannsferli sínum en það sé ekki fyrr en nú sem hann hafi óttast að ofbeldismenn gætu látið kné fylgja kviði eftir hótanir sínar. „Heiftin í þessum mönnum og talsmáti, og fullvissa þeirra um að sósíalistar sé skepnur og svívirðingar, veldur því að ég óttast að þetta sé ekki bara belgingur, eins og hótanir eru oftast.“
Brynjar Níelsson gerir lítið úr viðbrögðum Gunnars Smára. „Hann rekur samt sjálfur síðu hér á fésbókinni sem er nánast ein samfelld hatursorðræða. Þetta hljómar eins og að síbrotamaður kvarti yfir því að einhver hafi stolið af honum einni krónu.“
Þórður Snær gerir þetta að umtalsefni á Twitter síðu sinni:
„Forystumaður í stjórnmálum fær neðangreindar hótanir sendar. Hann kærir þar sem hann óttast að þeim fylgi alvara.
Aðstoðarmaður æðsta yfirmanns lögreglu á landinu fer á fb og skrifar: „þetta hljómar eins og síbrotamaður kvarti yfir því að einhver hafi stolið af honum krónu.”
Forystumaður í stjórnmálum fær neðangreindar hótanir sendar. Hann kærir þar sem hann óttast að þeim fylgi alvara.
— Þórður Snær Júlíusson (@thordursnaer) September 5, 2022
Aðstoðarmaður æðsta yfirmanns lögreglu á landinu fer á fb og skrifar: „þetta hljómar eins og síbrotamaður kvarti yfir því að einhver hafi stolið af honum krónu.” pic.twitter.com/YD8GUrq7mM