Gunn­laugur af­henti Jordan Peter­son mál­verk í gær

Gunnlaugur Jónsson, forstjóri Fintech Cluster, afhenti Jordan og Tammy Peterson málverk af Jordan sjálfum í lok fyrirlestur hans sem fór fram í Háskólabíó í gær.

Gunnlaugur greinir frá á Facebook-síðu sinni.

Hann segir málverkið sýna hraun sem tákni óreiðu öðrum megin vegar og haga sem tákni reglu hinum megin.

„Jordan talar oft um veginn þar á milli, þar sem maður leitar stöðugt jafnvægis,“ skrifar Gunnlaugur jafnframt.

Fréttablaðið greindi frá því fyrir helgi að uppselt væri á fyrirlestur Jordans en hann er doktor í klínískri sálfræði og prófessor við Háskólann í Toronto. Hann hefur kennt við Harvard og sló í gegn með bók sinni Tólf lífsreglur árið 2018 en bókin hefur selst í milljónum eintaka. Petersen heldur úti vinsælum þætti sem hann sendir út á Spotify og YouTube. Hann er með rúmlega fimm milljón fylgjendur á YouTube og er afar vinsæll en á sama tíma gríðarlega umdeildur.

Peterson hefur ýmsar kenningar um eðlislægan mun kynjanna sem stangast á við það sem kennt er í nútíma femínisma. Margir telja hann því aðeins höfða til karlmanna í kreppu sem eiga erfitt með að máta sig við kenningar femínismans.

Hér má sjá málverkið.
Skjáskot af Facebook