Gunnar Þórðarson, einn dáðasti tónlistarmaður landsins, er sagður hafa tekið afstöðu gegn forsætisráðherra á tónleikum sem hann hélt laugardagskvöldið fyrir páska.
Stefán Jón Hafstein, mögulegur forsetaframbjóðandi, vekur athygli á tjáningu Gunnars, sem ekki er vitað að hafi nokkru sinni fyrr blandað sér opinberlega í pólitík.
Stefán Jón skrifar: “Það er eitthvað að gerast djúpt undir niðri þegar maður sér Gunnar Þórðarson (hógvær, hlédrægur, feiminn, prúður, Bláu augun þín Gunni) standa á fremstu brún í Eldborg fyrir fullum sal og þruma yfir lýðinn: “Réttið upp hönd sem eiga peninga á Tortóla! Hverjir eiga peninga á Tortóla? Ekki það? Nei, við megum bara eiga krónur, ekki einu sinni evrur!\".
Undir þetta hafa fleiri tekið á facebook og staðfesta frásögn Stefáns Jóns.
Rannsókn fjölþjóðlegs teymis um eignir Íslendinga á Tortóla verður kynnt á næstu dögum samkvæmt heimildum Hringbrautar. Það var rannsóknarblaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson sem er hluti af teyminu sem afhjúpaði eignir forsætisráðherrahjónanna íslensku á Tortóla með fyrirspurn sinni og leiddi til þess að eiginkona forsætisráðherra sagði fyrst opinberlega frá eign þeirra hjóna, átta árum eftir að til hennar var stofnað í erlendu skattaskjóli. Í millitíðinni gerði félag eiginkonu forsætisráðherra 500 milljóna króna kröfur í þrotabú föllnu bankanna hér á landi.