Er þessi óvenjulega hugmynd lausnin á umferðarvanda reykjavíkurborgar? sjáðu myndina

Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttatímans, hefur kastað fram þeirri hugmynd að nota eigi Reykjavíkurflugvöll undir bílaumferð á álagstíma. Þannig megi létta á umferð í kringum miðborgina. Borgarbúar hafa fundið hversu þung umferðin getur verið í Reykjavík á álagstíma. Gunnar segir að með því að láta flugvélar lenda með 5 mínútna millibili á flugvellinum myndi flugvöllurinn eingöngu vera notaður í tvo og hálfan tíma.

„Samkvæmt upplýsingum Isavia þá lenda eða taka sig á loft 32 farþegavélar frá Reykjavíkurflugvelli á morgun. Miðað við plan er gert ráð fyrir að tvær taki á loft á sömu mínútu og milli sumra annara eru aðeins 5 til 10 mínútur. Ef við gerum ráð fyrir að hægt væri að hafa 5 mínútur á milli flugvéla þarf þessi traffík ekki nema tvö og hálfan tíma. Aðra tíma sólarhringsins mætti nota völlinn til að létta á umferð í kringum miðborgina. Farþegaflugið mætti nota völlinn milli kl. 6:30 til 7:30, milli kl. 10:30 og 11:00, milli kl. 14:00 til 14:30 og milli kl. 19:30 til 20:00. Það ætti að duga. Aðra tíma mætti nota völlinn fyrir bílaumferð frá Njarðargötu með brú yfir í vesturodda Kópavogs, frá Suðurgötu að Nauthólsvegi við Háskólann í Reykjavík og frá Hlíðarenda að Skerjafirði (sem myndi tengja saman tvö uppbyggingarhverfi. Í það minnsta ætti að leyfa strætó að nota völlinn.“ segir Gunnar.

Gunnar bendir á að dæmi séu um að flugvellir séu notaðir undir bílaumferð til dæmis á Gíbraltar og í Sviss. 

„Ég er ekki verkfræðingur, en á myndinni má sjá þessar tengingar með rauðum línum. hafa mætti torg þar sem þríhyrningurinn er. Það er nokkur dæmi þess í heiminum að vegir liggi yfir flugbrautir. Þekktasta dæmið er flugvöllurinn á Gíbraltar, en ég keyrði eftir flugbraut einhvers staðar í Sviss (minnir að það hafi verið Interlaken), svo við ættum að geta lifað við þetta. Til að aðgreina flug- og bílaumferð eru notuð hlið sambærileg þeim sem notuð eru til að aðgreina umferð járnbrauta og bifreiða. Svo tæknin er ekki vandamál.“

 

\"Bílaumferð