Gunnar smári um meintan leigupenna bjarna ben

Þeir Gunnar Smári Egilsson, Sósíalistaforingi og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor og meintur hugmyndafræðingur frjálshyggjunnar á Íslandi, eiga í hatrammri ritdeilu á Facebook þessi dægrin. Tilefnið virðist vera nektarmyndirnar í Seðlabankanum, sem fjarlægðar voru vegna kvartana starfsmanns.

Skotin ganga á milli þeirra, en Gunnar Smári skilur ekki af hverju samfélagið logar vegna ritskoðunar Seðlabankans og líkir þessu við umræðu um múslima í Danmörku:

„Þar hafa þingmenn sett það í lög að innflytjendur verði að taka í hönd á embættismanni af gagnstæðu kyni ef þeir vilja öðlast ríkisborgararétt til að sanna að þeir hafi aðlagast dönsku samfélagi. Á Facebook er ekki þverfótað fyrir fólki sem vill neyða starfskonur Seðlabankans að ræða við yfirmenn sýna undir myndum af nöktum konum þótt þær vilji endilega losna undan því. Líklega til að leggja áherslu á að það sé þeirra að aðlaga sig feðraveldinu. Í Danmörku er líka hávær krafa um að múslímsk börn fái skammtað svínakjöt í mötuneytum skóla, verði bara svöng ef þau geti ekki borðað það sem er í matinn. Eins og konunum á bara að líða illa undir myndunum og einræðum yfirmannanna. Ég skil ekki alveg hvers vegna má ekki taka þessar myndir niður ef þær trufla einhvern. Hvert er eiginlega málið?“

http://eyjan.dv.is/eyjan/2019/01/22/gunnar-smari-um-meintan-leigupenna-bjarna-ben-madur-finnur-til-med-hannesi-ad-vera-fastur-thessu-skitadjobbi/

spyr Gunnar Smári.