Gunnar Smári: „Þetta er ríkisstjórn þjófa“

„Þetta er ríkisstjórn þjófa,“ segir Gunnar Smári Egilsson, félagi í Sósíalistaflokknum í nýrri skoðanagrein á vef Vísis.

Greinin er ræða Gunnars Smára sem hann hélt á mótmælunum á Austurvelli í gær þar sem fjöldi fólks mætti til að mótmæla sölu á Íslandsbanka. Í ræðu sinni greinir Gunnar Smári frá því fyrir hverja ríkisstjórn Íslands starfar að hans mati.

Gunnar Smári segir ríkisstjórnina vera ríkisstjórn Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja.

„Manns sem hefur sölsað undir sig kvóta í sjávarbyggðum um allt land og skilið fólk eftir atvinnu- og eignalaust.

Manns sem var formaður bankaráðs Glitnis þegar sá banki hrundi eftir að hluthafar höfðu skælt hann að innan.

Manns sem hefur logið og svikið fólk, svikið undan skatti, hlunnfarið sjómenn með því að kaupa aflann af sjálfum sér á undirverði, falið hagnaðinn af auðlind almennings í útlöndum, mútað og arðrænt fólk víða um lönd.

Manns sem sigaði skæruliðadeild sinni á blaðamenn til að fæla þá frá því að afhjúpa svikin, lygina og þjófnaðinn,“ sagði Gunnar Smári meðal annars í ræðu sinni.

Þá sé ríkisstjórnin einnig ríkisstjórn Bakkavarabræðra. „Ríkisstjórn stærstu hluthafanna í Kaupþing, banka sem varð stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar og með stærri gjaldþrotum heimssögunnar.

Manna sem voru ekki bara stærstu hluthafar í bankanum heldur stærstu lántakendurnir, manna sem notuðu bankann eins og eigin seðlaprentvél.

Manna sem urðu þess valdandi að lífeyrissjóðirnir ykkar töpuðu 230 milljörðum króna á núvirði. Þeir tveir menn sem persónulega hafa lækkað mest allra lífeyri landsmanna. Um 115 milljarða hvor,“ segir Gunnar Smári meðal annars um Bakkavarabræður.

Ríkisstjórnin sé einnig ríkisstjórn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. „Ríkisstjórn stærsta hluthafa Glitnis sem hrundi fyrstur íslensku bankanna vegna misnotkunar eigendanna.

Manns sem var stærsti hluthafi FL-Group sem varð eitt allra stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar.

Ríkisstjórn forstjóra Baugs sem var enn eitt af allra stærstu gjaldþrotum Íslandssögunnar.

Ríkisstjórn manns sem sagt er að hafi náð 1000 milljörðum út úr bankakerfinu áður en það hrundi, líklega sá maður sem gekk lengst í misnotkun á gerspilltu bankakerfi fyrir Hrun,“ heldur Gunnar Smári áfram.

Gunnar Smári heldur áfram og bætir við að ríkisstjórnin sé ríkisstjórn fleiri aðila líkt og Benedikts Sveinssonar, föður Bjarna Ben, og Engeyinga, Þórðar Más Jóhannessonar, Jakob Valgeirs Flosasonar, Karl Wernerssonar og síðast en ekki síst ríkisstjórn Guðbjargar Matthíasdóttur.

„Ef þetta er ríkisstjórn þessa fólks þá getur þetta ekki ríkisstjórnin þín. Þetta er ekki ríkisstjórn almennings, ekki ríkisstjórn þjóðarinnar. Þetta er ríkisstjórn óligarka og arðræningja, Þetta er ríkisstjórn þjófa,“ segir Gunnar Smári að lokum í ræðu sinni.

Ræðuna má lesa í heild sinni á vef Vísis.