Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og guðfaðir Sósíalistaflokksins, skýtur föstum skotum að Hörpu Ólafsdóttur, formanni samninganefndar Reykjavíkurborgar, í nýrri færslu á Facebook. Þar segir hann ljóst að hún sé í hefndarhug, verandi fyrrverandi starfsmaður Eflingar. Eyjan tók saman.
Líkt og fram hefur komið hittust samninganefndir Eflingar og Reykjavíkurborgar í morgun í fyrsta sinn í ellefu daga. Áfram verður fundað á morgun. Í færslunni sinni sakar Gunnar Hörpu um dómgreindarleysi og um að baktala forystu Eflingar í eyru meirihlutans.
„Ætli borgin mæti á fundinn tómhent? Haldi áfram hernaði sínum gagnvart fátækasta fólkinu í borginni? Og ætli fyrrum starfsmaður Eflingar, sem hætti vegna ónægju með kjör félagsmanna á nýrri forystu, leiði áfram viðræðurnar fyrir hönd okkar borgarbúa? Hvað er það?
Harpa Ólafsdóttir hefur ekki aðeins leitt þessar viðræður inn í blindstræti og verkföll heldur hefur augljóslega sannfært grey fólkið í meirihlutanum um að forysta Eflingar sé vandamálið, ekki kröfur félagsmanna,“ skrifar Gunnar.
Hann tekur Dag B Eggertsson, borgarstjóra, einnig á beinið:
„Það hefur mátt heyra á mæli Dags B. Eggertsson borgarstjóra sem er byrjaður að bresta í lofræður um Sigurð Bessason, fyrrum formann Eflingar og yfirmann Hörpu, og dásama starf hans fyrir verkalýðinn (sem merkir þá að núverandi forysta starfi ekki fyrir verkalýðinn).
Fólkið í meirihlutanum hefur margsannað að það er ekki í standi til að rekajafn stóra einingu í Reykjavíkurborg er; framkvæmdir fara langt fram úr áætlunum, eftirlit er ekkert, samningar ekki frágengnir og einelti og bunker mentality grasserar í Ráðhúsinu. Það að skipa Hörpu formann samninganefndar sýnir sama dómgreindarleysið, að láta konu í hefndarhug leiða viðræður við láglaunafólkið. Eins og það hafa þurft að flækja málin!“
Spyr hvort ástæða sé til að setja sérstakar siðareglur
Harpa hætti störfum fyrir Eflingu þegar Sólveig Anna tók við stjórnartaumunum árið 2018. Gunnar Smári hefur áður gagnrýnt Hörpu fyrir að sitja nú hinum megin borðsins. Spyr hann hvort ástæða sé til þess að setja sérstakar siðareglur sem banna slík starfskipti.
„Í tillögum siðfræðinga um breytta stjórnmálamenningu má meðal annars finna tillögu um að banna stjórnmálamönnum að hoppa úr stjórnmálum yfir borðið í þjónustu hagsmunasamtaka fyrirtækja- og fjármagnseigenda. En hvað með verkalýðshreyfinguna, á hún að setja sér slíkar reglur?
Harpa Ólafsdóttir, sem stýrir nú samningum við verkalýðsfélögin fyrir hönd Reykjavíkurborgar var þar til fyrir rúmu ári síðan forstöðumaður kjaramálasviðs Eflingar og hagfræðingur félagsins. Reykjavíkurborg er náttúrlega ekki hagsmunasamtök hinna fáu ríku, heldur lýðræðisvettvangur allra borgarbúa; en það er samt skrítið að sá sem áður samdi fyrir hönd Eflingar um hækkun launa við Reykjavíkurborg skuli nú sitja hinum megin borðsins og verjast kröfum Eflingar og annarra verkalýðsfélaga um hækkun launa og styttingu vinnuvikunnar.“