Gunnar smári segir gamma-drengina eyðileggja allt sem er skapandi: „græða á að blóðmjólka banka og aðra sjóði sem þeir komast yfir“

Fjölmiðlamaðurinn og sósíalistinn, Gunnar Smári Egilsson, segir Gamma-drengina vera að hrekja Bíó Paradís út og reiknar ekki með því að fá neinn til þess að leigja húsnæðið á rúmlega tvöföldu verði.

„Það er nóg fyrir af tómu húsnæði í miðbænum. Þetta gengur út að hækka áætlað leiguverð svo hægt sé að taka hærri lán út á eignina eða selja hana á hærra verði. Og þá skiptir engu hvort einhver vill leigja, bankinn spyr ekki um það (eins og sést á miklu magni af tómu verslunar- og skrifstofurými í miðbænum, sem lækkar ekkert þrátt fyrir enga eftirspurn),“ segir Gunnar í færslu á Facebook sem hann birtir á síðunni Sósíalistaflokkur Íslands.

Færsluna kallar Gunnar „Hagfræði heimskunnar“ og segir hann stöðuna grátlega fyrir unnendur kvikmynda og fyrir fólkið sem byggt hefur Bíó Paradís upp sem menningarmiðstöð í miðbænum.

„Ef Gamma-drengirnir eiga í erfiðleikum með að borga lánin þá safnar bankinn vanskilum saman, bætir ofan á höfuðstólinn á láninu sem þeir fengu vegna hækkunar leigunnar (þótt enginn vildi leigja) og lánar nýju fyrirtæki Gamma-strákanna, sem kaupir húsið á hærra verði,“ segir hann.

Eyðileggja allt sem er skapandi og fagurt

Þá segir Gunnar stöðuna skelfilega í ljósi þess að Gamma-drengirnir séu helstu ráðgjafar forystu Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum.

„Þeir trúa á skapandi eyðileggingu; þeir eyðileggja allt sem er skapandi og fagurt í samfélaginu og græða á því í leiðinni, græða á að blóðmjólka banka og aðra sjóði sem þeir komast yfir.“

Með færslunni birtir Gunnar mynd af tísti Hermigervils sem flýja þurfti með stúdíó sitt undan okurleigu í húsnæði sem hefur síðan staðið autt í fjögur ár.

\"\"