Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, er einn þeirra sem hefur gefið kost á sér til formanns Neytendasamtakanna. Kosið verður um formann á þingi Neytendasamtakanna þann 27. október næstkomandi.
Aðrir frambjóðendur eru: Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Guðjón Sigurbjartsson, Jakob S. Jónsson og Unnur Rán Reynisdóttir.
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, finnur að skorti á gagnrýni frá Breka í garð fyrirtækja:
„Breki hefur rekið Stofnun um fjármálalæsi, sem styrkt er af Arionbanka og starfað með Samtökum fjármálafyrirtækja að ýmsum verkefnum. Ég ætla ekki að vera of hæðinn; en markmið Stofnunar um fjármálalæsi virðist vera að aðlaga neytendur að þeim sjúka fjármálamarkaði sem orðið hefur til við fjármálavæðingu samfélagsins á undanförnum áratugum. Í áherslum hans er hvergi minnst á okur fyrirtækja né veikari neytendarétt hérlendis en í næstu nágrannalöndum. Hans markmið virðist vera að stunda fræðslu meðal barna og ungmenna, svo þau sætti sig betur við stöðu sína sem neytendur á markaði þar sem fyrirtækin setja reglurnar, velja dómarann og eiga boltann.“
Nánar á