Gunnar smári og kolbrún í ritstjórunum

Forsetaslagurinn og staðan í landsmálapólitíkinni eru helstu umræðuefni ritstjóranna í samnefdnum þætti á Hringbraut í kvöld, en hæsta önn íslenskrar ferðaþjónustu fær líka sína umsögn hjá þeim þaulvönu fjölmiðlamönnum sem taka umræðu dagsins að þessu sinni.

Þau eru þau Gunnars Smári Egilsson ,ritstjóri og útgefandi Fréttatímans og Kolbrún Bergþórsdóttir, ritstjóri DV sem setjast á rö-kstólana með Sigmundi Erni í kvöld og talið berst fyrst að Grímunni og þeirri áleitu spurningu hvort það sé sanngjarnt að efna til árlegra verðlauna af því taginu á hverju ári í jafn fámennu samfélagi og Ísland er. Þá er staða stjórnmálaflokkanna vegin og metin í þættinum og einkum þar staldrað við vaxandi fylgi Viðreisnar sem fleiri en sjálfstæðismönnum stendur sennilega ógn af. Eins er þeirri stóru spurningu varpað fram af hverju almenningur hampar Guðna Th. Jóhannessyni en hafnar á sama tíma Davíð Odssyni í forsetaslagnum þar sem hlutur Andra Snæs og Höllu Tómasardóttur virðist heldur vera að vænkast.

Loks eru ferðamálin tekin fyrir og þess spurt hvort Íslendingar þurfi að fara að skammast sín fyrir aðstöðuleysið hér á landi, en með fjöldatúrismanum er að verða einhver mesta breyting á atvinnuháttum Íslendinga sem orðið hefur í háa herrans tíð.

Á endanum er svo spáð í fótboltann og EM, nema hvað ...

Ritstjórarnir hefja upp raust sína klukkan 21:30 í kvöld.