Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, minnist vinar síns, Hrafns Jökulssonar, á Facebook-síðu sinni í dag.
Fréttablaðið greindi frá andláti Hrafns fyrr í dag en hann var rétt tæplega 57 ára gamall.
„Hrafn var náttúruafl, eins og þau sem þekktu til hans munu segja ykkur á næstu dögum. Gat fengið fólk og félög til að blómstra. En gat svo flætt um eins og glóandi hraun. Ómótaður krafutr sem ómögulegt var að segja til um hvað yrði úr eða ætlaði sér. Og það gat orðið ansi heitt og háskalegt nærri Hrafni,“ skrifar Grunnar Smári meðal annars um vin sinn.
„Hrafn reyndist mér vel þegar enginn vildi ráða mig til nokkurra verka seint á síðustu öld. Hann var þá ritstjóri á Alþýðublaðinu og leyfði mér að skrifa þar greinar, meira að segja að hæðast að nýkjörnum forseta í einskonar framhaldssögu sem við kölluðum Bessastaðabækurnar. Hann las líka yfir bók sem skrifaði. Í raun skrifaði ég bókina fyrir Hrafn, mætti með nýjan kafla í hverri viku eins og Hrafn þyrfti að senda hann í prentun þá um kvöldið. Samt vorum við ekki miklir mátar í sjálfu sér, höfðum unnið saman, þekktum hvorn annan og gátum skemmt okkur með samtali. En við vorum ekki það sem kalla má vini. Ég hafði orðið vélarvana út á sjó, siglt í höfn hjá Hrafni og stungið mér í samband við orkuvélina sem hann var. Eins og svo margir gerðu,“ skrifar Gunnar Smári jafnframt.
Hægt er að lesa færslu Gunnars Smára í heild sinni hér að neðan en hann sendir öllu fólkinu hans Hrafns samúðarkveðjur.