Gunnar smári kveður fréttatímann

Starfsfólk Fréttatímans berst nú við að halda áfram útgáfu blaðsins. Tilraunir til að tryggja undirstöður þess á undanförnum vikum og mánuðum leiddu til þess í síðustu viku að ég hætti afskiptum af blaðinu og félaginu meðan lánardrottnar, aðrir hluthafar, starfsfólk og mögulegir kaupendur leituðu nýrra lausna. Sú ráðstöfun var talin auka líkur á góðri lausn og var mér að sársaukalausu.

Eins og sum ykkar vitið hef ég undanfarið kannað möguleika á stofnun Sósíalistaflokks Íslands, að sumu leyti vegna þess að runnið hefur upp fyrir mér að þótt fjölmiðlar séu óendanlega mikilvægir samfélaginu er það sorglega lýjandi hversu litlu þeir fá áorkað. Það kom ágætlega í ljós í síðustu viku þegar valdamesta fólk landsins þóttist óendanlega hissa á hversu óheiðarlega var staðið að kaupum á Búnaðarbankanum þótt auðskiljanlegar frásagnir af þessari flettu hefðu verið birtar fyrir tólf árum. Og oft síðan. Það er ljóst að við þurfum eitthvað meira til að breyta þessu samfélagi en að segja fréttir af því hversu gallað það er. Það er ekki nóg að reyna að hafa áhrif á umræðuna, við verðum að umbreyta uppbyggingu samfélagsins. Það er ekki nóg að benda á hversu spillt valdastéttin er og hvernig hún færir eigur almennings til sín og sinna, við verðum að taka völdin af þessu fólki. Það er ekki nóg að benda á hvernig óréttlátt þjóðskipulag sviptir þúsundir möguleikum á mannsæmandi lífi og svipir mannlegri reisn, við verðum að taka þátt í baráttu þessa fólks með beinum og afgerandi hætti.

Liður í björgun Fréttatímans var söfnun stuðnings frá almenningi í gegnum hið óstofnaða félag Frjáls fjölmiðlun. Ekkert af þeim framlögum var innheimt meðan óvissa var um áframhaldandi útgáfu blaðsins og ekkert af þeim verður innheimt á meðan enn er óvissa um útgáfuna eða um hvort blaðið verði áfram óháð og ritstjórn þess starfi í almannaþágu.

Ég óska Fréttatímanum langra lífdaga og þakka starfsfólkinu ánægjulega samfylgd. Sjálfur mun ég halda áfram að stunda mína blaðamennsku, en þá í tengslum við starf Sósíalistaflokks Íslands.