Gunnar Smári Egilsson fyrrverandi ritstjóri og útgefandi safnar liði til að steypa forystu stéttarfélagsins Eflingar.
Þetta herma traustar heimildir Hringbrautar.
Uppreisnarmenn Gunnars Smára hyggjast hittast á kaffihúsi í Skeifunni síðar í dag og ráða ráðum sínum.
Samkvæmt upplýsingum á vef Eflingar rennur framboðsfrestur til stjórnar út hinn 28. janúar.
Núverandi formaður Eflingar er Sigurður Bessason.