Gunnar Smári bað Össur um að aðstoða Sósíalista: „Ég er að hugsa um að gera það“

Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalistaflokksins, hafði samband við Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formann Samfylkingarinnar og ráðherra, og bað hann um að aðstoða Sósíalistaflokkinn fyrir komandi kosningar. Össur segir frá þessu á Facebook síðu sinni og telur Sósíalistaflokkinn vera eini flokkurinn sem er kominn í kosningaham. „Hann er vívant og baráttuglaður og er að heyja verulega úthugsaða baráttu. Skilaboðin eru beinskeytt og beint í hjartastað þeirra sem hann miðar á. Hugsanlega kann Gunnar Smári þá kúnst að toppa á réttum tíma. Það er alla vega ótrúlega skammt í kosningar og einhvern veginn finnst mér mómentum vera með flokknum,“ segir Össur.

„Ófyrirleitnin í Gunnari Smára birtist í því að hann sendi mér póst þar sem hann bað mig að aðstoða flokkinn við að komast í framboð með því að skrifa á meðmælendalista hans í Reykjvík norður. Ég er auðvitað upp með mér að sósíalistar leiti til manns sem þeir hafa húðskammað fyrir að vera óforbetranlegur eðalkrati og gömul hækja íhaldsins. Enginn annar flokkur hefur beðið mig um þetta. Svo ég er að hugsa um að gera það.“

Færsla Össurar hefur fengið mikil viðbrögð. Þórarinn nokkur segir við Össur: „Ég sé fyrir mér hvernig mörg gömul og djúp samviskubit hjá húðskömmuðum krata hverfa á örskotsstundu þegar hann kvittar upp á hjá Sósíalistunum.“

Össur tekur undir það: „Ef hægt er að kaupa sér aflát fyrir margar og vondar pólitískar syndir þá er ég til!“