Gunnar Smári ætlar á þing: „Flokkur sem hefur orðið til út frá brýnni þörf al­mennings“

Fyrrum fjöl­miðla­maðurinn Gunnar Smári Egils­­son ætlar að bjóða sig fram á lista Sósíal­ista­­flokks Ís­lands í al­þingis­­kosningunum í haust. Gunnar Smári er stofnandi og for­­maður fram­­kvæmda­­stjórnar Sósíal­ista­­flokksins en flokkurinn ætlar að bjóða fram lista í öllum kjör­­dæmum.

Gunnar Smári segist hafa verið hvattur til að bjóða sig fram.

„Ég lofaði kjör­nefnd því að á­kveða mig um helgina og gefa þeim svarið eftir þessa helgi. Þegar ég gekk inn í salinn í dag og sá fé­laga mína þar þá á­kvað ég með sjálfum mér að ef að fé­lagarnir telja sig geta notað mig þá er ég alveg til í að bjóða mig fram.“

Gunnar Smári er bjart­sýnn á að Sósíal­ista­flokkurinn komist á þing enda segir hann sósíal­isma vera í tísku hjá ungu fólki.

„Flokkurinn mælist inni og er búinn að mælast inni eigin­lega allt þetta ár á þingi án þess að hafa kynnt lista. Þetta eru gras­rótar­sam­tök, þetta er ekki klofningur út frá öðrum flokkum, þetta er flokkur sem hefur orðið til út frá brýnni þörf al­mennings,“ segir Gunnar Smári.

Undan­farið hefur Sósíal­ista­­flokkurinn verið að mælast með um fimm til sex prósenta fylgi í skoðana­­könnunum og ætti því að ná mönnum á þing sam­­kvæmt því.

Gunnar Smári segir það sæta tíðindum í ís­­lenskri pólitík að stjórn­­mála­­flokkur sem hafi enn ekki kynnt fram­­boðs­lista mælist með full­­trúa á þingi. Listum verður stillt upp af sér­­stakri kjör­­nefnd en búist er við að hún ljúki störfum fyrstu vikuna í ágúst.