Gunnar Smári: „Á Íslandi er lagður hærri tekjuskattur á börn en fullorðið fólk“

Gunnar Smári Egilsson, félagi í Sósíalistaflokknum, segir hærri tekjuskatt lagðan á börn á Íslandi en fullorðið fólk og öfugt við þau fullorðnu fái börn engan persónuafslátt.

Þessu vill hann breyta, að börn verði skattlögð eins og fullorðið fólk, en að þau fái persónuafslátt og að persónuafsláttur verði nýtanlegur innan fjölskyldunnar líkt og hjá sambúðarfólki.

Þetta kemur fram í nýjum pistli Gunnars Smára á vef Vísis.

Gunnar Smári leggur einnig til að sá hluti persónuafsláttar sem ekki nýtist til skattalækkunar verði greiddur út.

Í pistli sínum segist Gunnar Smári skýra út hvernig skattabreytingar nýfrjálshyggjuáranna færi skattbyrði frá hinum efnamestu til hinna efnaminni, einkum þeirra sem hafa miðlungs eða lægri tekjur.

„Þetta ásamt hrörnun vaxta- og barnabóta hefur dregið úr efnahagslegum styrk barnafjölskyldna,“ segir Gunnar Smári og heldur áfram: „Þetta er heimskuleg stefna, því allt samfélagið hefur hag af því að barnafjölskyldur standi sterkt. Skattkerfið á þannig að lyfta byrðum af barnafjölskyldum og bæta hag þeirra sem mest.“

Að sögn Gunnars Smára á tekjujöfnun milli tekjuhópa að fara fram í gegnum skattþrep, skattprósentu og persónuafslátt en ekki tilfærslukerfi.

„Því miður höfum við snúið frá velferðarríkinu sem bætti hag fjöldans. Við stefnum að alræðisríki hinna fáu ríku, þar sem auður er forsenda þess að lifa áhyggjulausu lífi, við öryggi og trygga framfærslu,“ segir Gunnar Smári jafnframt.

Góð leið til að stíga á bremsuna og byrja beygja af þessari háskabraut sé að barnafjölskyldur nái fram eftirfarandi kröfum:

  1. Börn séu ekki skattlögð umfram fullorðið fólk
  2. Börn fái persónuafslátt
  3. Persónuafsláttur nýtist innan fjölskyldna, ekki bara milli maka
  4. Ónýttur persónuafsláttur sé greiddur út

Pistil Gunnars Smára má lesa í heild sinni hér.