Gunnar sigurðsson er látinn: „við þökkum gunnari fyrir undirleikinn“

Gunn­ar Sig­urðsson fædd­ist á Þing­eyri 25. janú­ar 1939. Hann lést á Land­spít­al­an­um 14. des­em­ber 2019.  Á sín­um yngri árum var Gunn­ar liðtæk­ur knatt­spyrnumaður og lék með KR. Hann spilaði einnig á kontrabassa með ýms­um hljóm­sveit­um. Þeirra þekkt­ust er Savanna tríóið. Þá var Gunnar meðeigandi hjá end­ur­skoðun­ar­skrif­stofu N. Manscher & Co og gerðist meðeig­andi að end­ur­skoðun­ar­skrif­stof­unni, sem nú ber nafnið PwC.

Gunn­ar kvænt­ist Guðnýju Leós­dótt­ur og eignuðust þau fjögur börn. Gunn­ar var fædd­ur á Þing­eyri, yngst­ur sex systkina. Sigurður, faðir Gunnars var prestur. Hann lést á svip­leg­an hátt í snjóflóði á ný­árs­dag þegar Gunn­ar var tæp­lega fjög­urra ára og flutti fjöl­skyld­an þá til Reykja­vík­ur.

\"\"Gunn­ar lauk prófi frá Versl­un­ar­skóla Íslands árið 1957 og réð sig þá í kjöl­farið til starfa í Útvegs­banka Íslands. Árið 1962 hóf Gunn­ar starfs­nám hjá end­ur­skoðun­ar­skrif­stofu N. Manscher & Co og gerðist meðeig­andi að end­ur­skoðun­ar­skrif­stof­unni, sem nú ber nafnið PwC, árið 1970 eða sama ár og hann fékk lög­gild­ingu sem end­ur­skoðandi. Gunn­ar starfaði á PwC allt til árs­ins 2005.

Gunn­ar var fag­leg­ur fram­kvæmda­stjóri Fé­lags lög­giltra end­ur­skoðenda (FLE) í fjög­ur ár eft­ir að hann lét af störf­um hjá PwC. Á ár­un­um 1989-1991 gegndi Gunn­ar embætti for­seta Nor­ræna end­ur­skoðun­ar­sam­bands­ins fyr­ir hönd FLE.

Á sín­um yngri árum var Gunn­ar liðtæk­ur knatt­spyrnumaður og lék með KR. Hann spilaði einnig á kontrabassa með ýms­um hljóm­sveit­um. Þeirra þekkt­ust er Savanna tríóið.

Björn G. Björns­son, Troels Bendtsen, Þórir Bald­urs­son, vinir Gunnars í Savanna tríóinu minnast hans í Morgunblaðinu í dag. Savanna tríóið naut mikilla vinsælda og sem dæmi má nefna að þá spilaði tríóið í í sjón­varpsþætti Magnús­ar Magnús­son­ar á BBC, Tonight Show í London árið 1965 en það var í fyrsta sinn sem þeir félagar komu fram í sjónvarpi.

Savanna tríóið var í fararbroddi íslenskra þjóðlagatríóa sem nutu vinsælda á sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda. Tríóið sótti fyrirmynd sína til hins bandaríska Kingston tríós en fór brátt eigin leiðir í tónlistarsköpun sinni.

Í minningargrein í Morgunblaðinu segir meðal annars:

\"\"„Árið 1964 tók Gunn­ar stöðu Guðjóns Mar­geirs­son­ar við bass­ann og varð fjórði maður­inn í tríó­inu. Það þótti ýms­um stórt tríó og víst er að það stækkaði á all­an hátt við til­komu hans. Hann var þá þegar agaður at­vinnumaður í tónlist, mús­ík­alsk­ur og flink­ur bassa­leik­ari, enda bróðir Jóns „bassa“ í KK-sex­t­ett­in­um.

Gunn­ar var ör­fá­um árum eldri en við og var þroskaði maður­inn í hópn­um, hélt stund­um aft­ur af mesta gals­an­um í hljóm­sveit­inni. Gunn­ar hafði gott eyra fyr­ir mús­ík og það var alltaf styrk­ur að hafa hann nærri, til dæm­is við upp­tök­ur á hljóm­plöt­um í stóra stúd­íói út­varps­ins við Skúla­götu. Hann vildi gjarn­an hafa spila­mennsk­una nokkuð ná­kvæma, enda gerðist hann end­ur­skoðandi.

Í einni af mörg­um söng­ferðum til Ak­ur­eyr­ar keyptu þre­menn­ing­ar sér sport­lega hatta í Amaro. Ekki fannst Gunn­ari það smekk­legt og gekk ber­höfðaður um höfuðstað Norður­lands. Þegar Colin Porter saumaði íðilgræna smók­inga á tríóið fékk Gunn­ar grá­an smók­ing. Hann var und­ir­leik­ar­inn, en alltaf einn af okk­ur.

Æv­in­týri Savanna tríós­ins eru ljós­lif­andi í minn­ing­unni. Þar er Gunn­ar Sig­urðsson við bass­ann, traust­ur og áreiðan­leg­ur, aðeins aft­ar en hinir á sviðinu, enda fjórði maður­inn í þessu stóra tríói.

Við send­um Gullu og fjöl­skyld­unni inni­leg­ar samúðarkveðjur og þökk­um Gunn­ari Sig­urðssyni fyr­ir und­ir­leik­inn.

Björn G. Björns­son, Troels Bendtsen, Þórir Bald­urs­son og fjöl­skyld­ur.

Ellert B. Schram minnist Gunnars og rifjar upp þegar þeir sátu hlið við hlið í Melaskóla.

„Hann hjálpaði mér í lær­dómn­um og passaði upp á mig í frí­mín­út­un­um. Úr Mela­skól­an­um lá leiðin, hjá okk­ur báðum, í Gaggó Vest og síðan áfram í Versl­un­ar­skól­ann og aft­ur sát­um við sam­an í skóla­stof­unni. Og svo fór­um við í fót­bolt­ann og enn var Gunni með mér í liði og báðir fór­um við á æf­ing­ar hjá KR og spiluðum sam­an í yngri flokk­un­um.

Í versl­un­ar­skól­an­um sát­um við Gunni sam­an í fjög­ur ár sem hafði í för með sér ein­læga og góða vináttu. Gunni lagði fót­bolta­skóna á hill­unni, þegar hann út­skrifaðist úr Versló og starfaði fyrstu árin á eft­ir í banka og um tíma tróð hann upp á skemmt­un­um og spilaði á gít­ar en síðar fór hann í nám til að verða end­ur­skoðandi og gegndi því starfi í ára­tugi.

Þegar hér var komið týndi ég þess­um vini mín­um eða hann mér þótt við ef­laust fylgd­umst með hvor öðrum þegar árin liðu. Hvor fór sína leið sem leiddi af sér fjar­lægð og ævi­stund­ir hvor í sín­um störf­um og viðfangs­verk­efn­um.

En í hvert skipti sem við hitt­umst fyr­ir til­vilj­un var vinátt­an ljós og gleðin í viðbrögðum okk­ar beggja. Gunni var kurt­eis, bros­mild­ur og glaðvær. Hann var í fram­komu sjentilmaður utan sem inn­an. Alla sína tíð. Ég sendi Guðnýju og dætr­um þeirra hjóna inni­lega samúðarkveðju frá göml­um vini þessa góða manns.“

Fyrrverandi og núverandi samstarfsmenn og eigendur PwC ehf.  segja í meðal annars í minningargrein:

„Gunn­ar var ætíð virt­ur og vel met­inn af viðskipta­vin­um og sam­starfs­mönn­um. Að mörgu leyti var Gunn­ar frum­kvöðull í starfi end­ur­skoðenda og á und­an sinni samtíð, t.d. varðandi tölvu­notk­un, og skil­ur eft­ir sig djúp spor bæði inn­an okk­ar fyr­ir­tæk­is og FLE.

Við flytj­um Guðnýju eig­in­konu Gunn­ars, dætr­um þeirra og öðrum ætt­ingj­um inni­leg­ar samúðarkveðjur frá fyrr­ver­andi sam­starfs­mönn­um og nú­ver­andi starfs­mönn­um og eig­end­um PwC ehf. Gunn­ars Sig­urðsson­ar verður ætíð minnst með virðingu og þakk­læti.

Blessuð sé minn­ing hans.“

Útför Gunn­ars fór fram frá Grafar­vogs­kirkju í dag, 27. des­em­ber 2019.