Gunnar Jóhann Gunnarsson er grunaður um að hafa drepið bróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson á heimili hans í Noregi síðustu helgi. Hann var yfirheyrður í morgun. Í frétt RÚV er minnst á það sem áður hefur komið fram í íslenskum fjölmiðlum að Gunnar hefði verið úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart bróður sínum vegna hótana tíu dögum áður. Þar segir einnig að lögreglan í Noregi hafi ekki viljað gefa upp í hverju þær hótanir fólust. Hringbraut hefur undir höndum skjáskot sem sýnir samskipti Gunnars og Gísla á svipuðum tíma og Gunnar var úrskurðaður í nálgunarbann.
Gísli Þór deildi á Facebook-síðu sinni skrifum eftir Inga Rafn Ragnarsson á Stundinni. Ingi fjallaði þar um atvikin sem leiddi til þess að faðir hans lét lífið að völdum bróður hans á bænum Gýgjarhóli II í Bláskógabyggð. Fyrirsögn greinar hans var:
„Það sem gerðist að Gýgjarhóli þegar faðir minn lést af völdum bróður síns.“
Gísli deildi eins og áður segir greininni eftir Inga Rafn þann 11. apríl síðastliðin. Þar skrifaði Gísli: „Svakaleg lesning.“ Bætti hann síðan hjarta við innlegg sitt líkt og sést á skjáskotinu. Fyrir rúmum tíu dögum skrifaði Gunnar Jóhann bróðir hans óhugnanlegt innlegg fyrir neðan statusinn sem fjallaði um harmleik þar sem einn bróðir myrti annan hér á landi. Þar sagði Gunnar:
„Bræður munu berjast“ á þetta ekki vel við?“
Ekki er hægt að líta öðruvísi á þetta enn hótun í ljósi þess sem gerðist rúmri viku síðar.
Sagt að Gunnar hafi játað verknaðinn strax við handtöku
Í norskum miðlum hefur verið greint frá því að Gunnar Jóhann hafi játað að hafa orðið bróður sínum að bana. Þá sagði hann á Facebook að hann hefði framið svívirðilegan glæp en bætti við að hann hefði aldrei ætlað að hleypa af byssunni.
Gunnar Jóhann var yfirheyrður í fyrsta sinn í morgun. Í frétt RÚV sagði að Gunnar væri bæði sorgmæddur og niðurbrotinn en hann neitaði sök.