Gunnar Jóhann Gunnarsson, sem grunaður er um að hafa drepið bróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson á heimili hans í Noregi síðustu helgi var yfirheyrður í morgun í fyrsta sinn. Verjandi hans segir í samtali við RÚV að Gunnar Jóhann sé niðurbrotinn og sorgmæddur.
Gunnar Jóhann hefur margsinnis hefur komist í kast við lögin, meðal annars fyrir nauðgun, grófar líkamsárásir og rán. Hann hafði verið úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart hálfbróður sínum vegna hótana um tíu dögum áður.
Líkt og bent er á í frétt RÚV hafði Gunnar Jóhann, samkvæmt frásögn norskra miðla játað glæpinn. Gunnar Jóhann skrifaði einnig innlegg á Facebook-síðu sína skömmu eftir verknaðinn:
„Fyrirgefið mér, en ég get ekki lifað með það vitandi að, Guðfaðir sonar míns, minn besti maður í giftingunni minni, og ég skýrði son minn í höfuð hans, það réttlætir ekki neitt hvað ég gerði, en sársaukinn og hjartað mitt var brotið það mikið að ég framdi svívirðilegan glæp sem mun elta mig alla ævi. En þetta átti ekki að fara svona en þetta var stórslys, ætlaði aldrei að hleypa af.
Vidar Zahl Arntzen, verjandi Gunnars Jóhanns sagði í samtali við Fréttastofu RÚV: „Þetta er allt mjög flókið. Gunnar er niðurbrotinn og mjög leiður en gat í yfirheyrslunni varpað ljósi á hvað gerðist þennan dag.“ Þá bætti lögfræðingurinn við:
„Hann segir þetta hafa verið hræðilegt slys. Hann ætlaði sér aldrei að meiða bróður sinn, það er aðalatriðið.“