Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Gunnar Jakobsson lögfræðing í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika til fimm ára að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra Bjarna Benediktssonar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika var auglýst laust til umsóknar 3. október sl. Umsóknir bárust frá tíu einstaklingum og dró einn umsækjandi umsókn sína til baka.
Hæfnisnefnd valdi fimm umsækjendur mjög vel hæfa til að gegna embættinu; þau Guðrúnu Johnsen, Gunnar Jakobsson, Jón Þór Sturluson, Tómas Brynjólfsson og Yngva Örn Kristinsson.
Var það niðurstaða fjármála- og efnahagsráðherra að Gunnar væri hæfastur umsækjenda og var hann tilnefndur til að fá skipun í embættið. „Er það niðurstaða forsætisráðherra á grundvelli heildarmats á umsóknargögnum, greinargerð hæfnisnefndar og rökstuðningi fjármála- og efnahagsráðherra fyrir tilnefningu sinni, og annarra gagna málsins, að tilnefning fjármála- og efnahagsráðherra byggist á traustum málefnalegum grunni og að Gunnar Jakobsson sé í reynd, á grundvelli þeirra matsþátta sem lagðir eru til grundvallar í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands og í auglýsingu um embættið, hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika,“ segir í tilkynningunni.
Þar sem Gunnar Jakobsson getur ekki hafið störf í Seðlabanka Íslands fyrr en 1. mars nk. vegna skuldbindinga sinna í núverandi starfi hefur forsætisráðherra, að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðherra, falið Ásgeiri Jónssyni, seðlabankastjóra, að gegna störfum varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika samhliða starfi sínu sem seðlabankastjóri.
Gunnar Jakobsson lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 1995 og MBA námi frá Yale háskóla árið 2001. Þá hlaut hann CFA-réttindi frá CFA-stofnuninni í Charlottesville í Virginíu árið 2006. Hann starfaði sem lögfræðingur í uppboðsdeild hjá sýslumanninum í Reykjavík árið 1995 en seinna sama ár hóf hann störf sem héraðsdómslögmaður hjá Lögmannsstofunni Síðumúla 9.
Á árunum 1997 til 1999 starfaði Gunnar sem lögfræðingur á nefndasviði Alþingis, meðal annars sem ritari efnahags- og viðskiptanefndar en hann hóf svo störf hjá fjárfestingabankanum Goldman Sachs & Co. sumarið 2000 og starfar þar enn í dag, fyrst í New York en frá árinu 2018 í London.
Frá árinu 2018 hefur Gunnar gegnt stöðu framkvæmdastjóra lausafjársviðs og persónuverndar fyrir Goldman Sachs International í London. Hann var stundakennari í almennri lögfræði á árunum 1995 til 1998 við lagadeild Háskóla Íslands. Þá sat hann í stjórn The Risk Management Association árin 2017 til 2019.