Gunnar í geðshræringu þegar hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald

Gunnar Jóhann Gunnarsson hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Noregi. Hann er grunaður um að hafa myrt hálfbróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson, í bænum Mehamn í Noregi aðfaranótt laugardag. Mehamn er fámennt og afskekkt samfélag í Noregi þar sem tæplega 800 manns búa og samtals um 1.100 manns í sveitarfélaginu Gamvik. Þar af eru um þrjátíu Íslendingar sem búa á svæðinu.

Sjá einnig: „Ég framdi svívirðilegan glæp sem mun elta mig alla ævi“

Gunnar hefur margsinnis komist í kast við lögin, meðal annars fyrir nauðgun, grófar líkamsárásir og rán. Annar Íslendingur er einnig grunaður um aðild að málinu. Hann var dæmdur ásamt öðrum manni fyrir að nauðga 16 ára stúlku. Gunnar Jóhann hlaut 22 mánaða fangelsisdóm en hann var þá 19 ára. Árið 2007 var hann dæmdur fyrir líkamsárás og árið 2010 í tveggja ára fangelsi fyrir aðra líkamsárás og frelsissviptingu.

Á fréttavefnum Ifinnmark.no er greint frá því að Gunnar Jóhann hafi verið með túlk með sér. Þá segir á vef RÚV að Gunnar hafi verið í geðshræringu og virkað mjög sleginn í réttarsal.

Við minnum á Facebook-síðu Hringbrautar. Þar er að finna áhugaverðar fréttir og þá er ýmislegt spennandi framundan fyrir vini Hringbrautar. SMELLTU HÉR og vertu vinur okkar á Facebook.