Gunnar Hrafn segist vera að fara í „árangurs­laust fjárnám“

Gunnar Hrafn Jónsson sem sat á þingi fyrir Pírata frá 2016 til 2017, segist vera á leiðinni í „árangurs­laust fjárnám“ hjá sýslumanni þar sem hann geti ekki borgað eigin skuldir með bótunum sem dugi ekki alltaf fyrir framfærslu.

Þetta kemur fram í pistli sem Gunnar ritar á Facebook-síðu sinni í dag.

„Á morgun, klukan nákvæmlega 13 mínútur yfir níu að morgni, verður gert hjá mér árangurslaust fjárnám, en ég hef verið á endurhæfingarlífeyri undanfarin ár til að geta snúið aftur á vinnumarkað af fullum krafti. Þetta er smá bakslag, svona miðjan jólamánuðinn.“

Gunnar veltir fyrir sér hver skilaboðin eru þegar starfsmaður ríkisskattstjóra hafi skorað á hann að sniðganga skilaboð um að mæta til sýslumanns.

„Merkilegust þóttu mér þó svör kröfuaðilans, Ríkisskattstjóra, sem hvöttu mig ítrekað til að mæta alls ekki til Sýslumanns á morgun þó að ég hafi verið boðaður þangað af lögreglu. Er það ekki dálítið á skjön við hlutverk opinberra stofnana að hvetja fólk til að leiða hjá sér þegar lögreglan kallar það inn í viðtöl vegna alvarlegra mála?“

Um leið segist hann ekki vera spenntur fyrir símtali frá Skattinum þar sem farið er yfir skuldina.

„Mér skilst reyndar af öðrum öryrkjum að þetta sé rétt, það taki því ekkert að mæta, kosti bara strætópening sem við gætum annars sparað. Ekkert gerist nema þú ert lýstur aumingi í fjarvist eða viðurvist þinni og tékkað hvort þú eigir nokkuð bíldruslu sem megi selja fyrir 50 þúsund kall upp í milljónaskuld. Gott að ég tók aldrei bílpróf.
Skatturinn heimtar hins vegar að fá frá mér símtal á miðvikudaginn, þegar þeir eru búnir að gera sitt misheppnaða fjárnám, til að byra að semja um skuldina. Sem ég get ekki með nokkru móti greitt á bótum sem duga ekki alltaf til framfærslu. Það verður skemmtilegt símtal. “