Gunnar Nelson reynddist ekki eiga möguleika í brasilíska bardagakappann Damian Maia en í ati þeirra í Las Vegas í nótt var hann ávallt skrefi á eftir mótherja sínum.
Maia náði góðu taki á Gunnari í hverri einustu lotu og virtist hann aldrei eiga möguleika gegn hinum reynslumikla Maia sem er í 6. sæti styrkleikalistans í UFC veltivigt, en Gunnar er þar í 12. sæti. Sérkunnátta þeirra beggja er brasilískt Jiu Jitsu sem fer að miklu leyti fram í gólfglímu. Maia er margfaldur Brasilíumeistari og heimsmeistari í greininni og virtist reynsla hans leika af honum þegar þeir Gunnar áttust við í nótt.
Maia sigraði bardagann mjög örugglega með einróma stigagjöf dómara honum í hag.